Tindastóll fer undir Hamarinn

Dregið var í Borgunar-bikarnum í knattspyrnu nú í hádeginu. Lið Tindastóls þarf að fara í Hveragerði og það ekki til að hvílast eða endurhlaða rafgeyminn heldur til að etja kappi við lið Hamars á Grýluvelli.

Hvergerðingar leika í 2. deild þetta sumarið. Reikna má með hörkuleik enda Hamarsmenn einatt erfiðir heim að sækja.

Meistaraflokkur kvenna dróst gegn liði Völsungs og er áætlað að leikurinn fari fram á Sauðárkróksvelli þriðjudaginn 28. maí en þá þurfa nú sennilega nokkur grös að spretta af stað á vellinum til að af því geti orðið.

Fleiri fréttir