Tindastóll í undanúrslitum á morgun
Á morgun keppir Tindastóll í undanúrslitum Powerade-bikarsins við KR-inga í DHL-höllinni og hefst leikurinn kl. 16.00. Fyrir þá sem heima sitja, verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á RUV. Tindastóll hefur þrisvar sinnum komist í undanúrslitin; 1993, 1999 og 2002, en aldrei náð í úrslitaleikinn sjálfan.
Í liðinu í dag leika fjórir leikmenn sem allir hafa spilað undanúrslitaleiki með Tindastóli, en það eru þeir Svavar Atli Birgisson, Helgi Rafn Viggóss, Helgi Freyr Margeirsson og Friðrik Hreinsson.
KR-ingar eru með gríðarlega sterkt lið. Þeir spila afar hraðan leik og hafa gott jafnvægi í sínu liði þegar kemur að stigaskori innan og utan vítateigs. Í liðinu er m.a. einn allra besti leikmaðurinn á Íslandi í dag, Pavel Ermolinskij sem á dögunum var valinn besti leikmaður Iceland Express deildarinnar á fyrri hluta tímabilsins.
Marcus Walker er gríðarlega fljótur leikmaður, sem keyrir upp hraðar sóknir KR-inga og er oftar en ekki langfyrstur þeirra fram völlinn. Þennan hraða leikmannsins hafa KR-ingar notfært sér afar vel í vetur og liðið hefur skorað flest stig allra liða í IEX-deildinni, eða 97.8 að meðaltali.
Brynjar Þór Björnsson er hreint magnaður skotmaður þegar hann dettur í gírinn og getur á skömmum tíma raðað niður stigunum. Hreggviður Magnússon spilar einnig stórt hlutverk hjá liðinu. Skarphéðin Frey Ingason kannast Skagfirðingar vel við, en hjá Tindastóli steig hann sín fyrstu skref í körfunni hér um árið.
Þá hafa KR-ingar eina mestu miðherjasúpu sem lið getur státað af á Íslandi í dag. Þetta eru þeir Fannar Ólafsson, Finnur Magnússon og "Kína"-Jón Orri Kristjánsson.
Hvert sem litið er hjá KR, eru afbragðsleikmenn að verki og breiddin í liðinu er góð.
Okkar menn verða að halda vel á spilunum ætli þeir sér sigur og allt veltur á varnarleiknum og því að hleypa KR-ingum ekki upp í einhverja vitleysu. Tindastóll sýndi það í fyrri hálfleiknum í deildarleik liðanna fyrir áramót í Reykjavík, að þeir geta vel strítt þeim röndóttu en til þess þarf að spila með fullri einbeitingu í 40 mínútur.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RUV og hefst hann kl. 16.00. Kl. 14 eigast við kvennalið KR og Hamars í undanúrslitum kvenna, sömuleiðis í beinni útsendingu, þannig að það verður körfuboltaveisla á okkar ástkæru ríkisstöð, nokkuð sem körfuboltaáhugamenn taka fagnandi og vert að þakka fyrir.