Tindastóll mætir KFR á Hofsósvelli
Karlalið Tindastóls mætir KFR í 3. deild karla á Hofsósvelli á sunnudaginn kemur, 5. júní. Leikurinn hefst klukkan 14. Það er því upplagt að leggja leið sína á Hofsós á sjómannadaginn og sjá leikinn í leiðinni.
Miðaverð á leikinn er 1.000 krónur en einnig er hægt að kaupa ársmiða á 5000 krónur og gildir hann á lalla leiki karla og kvenna í sumar. Áfram Tindastóll!