Tindastóll mætir KR í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn

Það varð ljóst í gærkvöldi hvaða lið mætir Tindastóli í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Þá áttust við lið KR og Njarðvíkur í oddaleik í DHL-höllinni í Vesturbænum og úr varð alveg ótrúleg viðureign þar sem KR-ingar höfðu betur eftir tvíframlengdan leik. Stólarnir mæta því KR fyrir sunnan í fyrsta leik liðanna nú á mánudagskvöld.

KR-ingar virtust ætla að stinga Njarðvíkinga af snemma leiks í gær en þeir komust í 16-0 þar sem það tók gestina sjö mínútur að skora fyrsta stig sitt í leiknum. Suðurnesjapiltarnir voru hins vegar ekkert á þeim buxunum að gefast upp, enda allt mögulegt þegar menn eru með snilling eins og Stefan Bonneau innanborðs (52 stig), og hægt og sígandi nálguðust þeir Vesturbæingana. Njarðvíkingar náðu svo sjö stiga forystu þegar tvær og hálf mínúta var eftir en lið KR, með Pavel og Craion sem bestu menn, jöfnuðu metin og tryggðu sér framlengingu. Njarðvíkingar voru hreinlega óheppnir að ná ekki að sigra í venjulegum leiktíma og sömuleiðis í fyrri framlengingunni en í þeirri síðari steig Björn Kristjánsson upp og tryggði KR-ingum sigur.

Fyrsti leikur KR og Tindastóls verður í DHL-höllinni mánudaginn 20. apríl en þar sem KR-sigraði Dominos-deildina eiga þeir heimaleikjaréttinn í viðureigninni. Annar leikur liðanna verður síðan á Króknum sumardaginn fyrsta, 23. april.

Fleiri fréttir