Tindastóll mætir KR í DHL-höllinni í kvöld

Tindastóll og KR mætast í kvöld á heimavelli KR, DHL-höllinni í Vesturbænum og er hörkuleikur framundan en samkvæmt heimasíðu Tindastóls eru KR-ingar að berjast um annað sætið í deildinni en Stólarnir að tryggja sig inn í úrslitakeppnina. Það munar fjórum stigum á liðunum, KR er með 22 stig en Tindastóll 18.  

Nú styttist í deildarkeppnina en umferðin í kvöld er sú 19 af 22. Liðin hafa þegar mæst tvisvar í Síkinu í vetur og báru Stólarnir sigur úr býtum í bæði skiptin. Í fyrri leik liðanna sem var í desember lauk leiknum með lokatöluna 99 - 94 og í bikarnum sigruðu Stólarnir KR með úrslitin 89 - 86.

Leikurinn í kvöld hefst kl. 19:15 og eru allir sem staddir eru á höfuðborgarsvæðinu hvattir til að mæta og hvetja strákana til dáða. En fyrir þá sem komast ekki verður leikurinn sýndur á  KR-tv  og samkvæmt facebook-síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls ætlar Óli Björn og gengið að vera á Mælifelli í kvöld og ætla að horfa á leikinn þar. „Endilega fylla kofann og eiga stórgóða stund saman!“ segir í facebook stöðufærslunni.

 

Fleiri fréttir