Tindastóll mætir Njarðvík í Ljónagryfjunni
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
20.10.2015
kl. 10.03
Dregið var í 32 liða úrslitum Powerade-bikarkeppni KKÍ í gær og ljóst að í það minnsta fjögur úrvalsdeildarlið munu detta úr leik þar sem óvenjumikið verður um innbyrðisviðureignir toppliða í umferðinni. Stórleikur umferðarinnar verður þó væntanlega viðureign Njarðvíkinga og Tindastóls í Ljónagryfjunni suður með sjó.
Aðrir stórslagir eru viðureignir Grindavíkur og FSu, Snæfells og Hauka og Stjörnunnar og ÍR. Ekki er alveg ljóst hvenær Stólarnir þurfa að eiga við Njarðvíkinga en leikdagar í 32 liða úrslitunum eru áætlaðir dagana 30. október til 2. nóvember.