Tindastóll mun halda körfuboltabúðir í júní
Stjórn og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls hafa ákveðið að halda körfuboltabúðir á Sauðárkróki vikuna 12. – 19. júní í sumar. Yfirumsjón með búðunum hefur Borce Ilievski, yfirþjálfari körfuknattleiksdeildarinnar. Von er á erlendum þjálfurum til starfa í búðunum, en auk þeirra verða fleiri aðstoðarþjálfarar við störf.
Föstudaginn 10. og laugardaginn 11. júní, verður haldið þjálfaranámskeið þar sem hinir erlendu þjálfarar munu halda fyrirlestra og vera með sýnikennslu fyrir þjálfara á Íslandi. Verður námskeiðið haldið í samvinnu við FKÍ, Félag körfuknattleiksþjálfara á Íslandi.
Búið er að opna sérstaka upplýsingasíðu á heimasvæði körfuknattleiksdeildarinnar á tindastoll.is. Þar verða settar inn upplýsingar af undirbúningnum, um leið og þær berast.
Skráning verður rafræn í búðirnar og verður það tilkynnt sérstaklega hvenær opnað verður fyrir þær. Gisting og fæði verður í boði fyrir aðkomuþátttakendur.
Nánari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurnir á netfangið korfuboltabudir@tindastoll.is.