Tindastóll og N1 gera með sér samkomulag
N1 og aðalstjórn Tindastóls hafa gert með sér samkomulag um að N1 verður einn af aðalstyrktaraðilum Tindastóls. N1 mun greiða mánaðarlega til Tindastóls auk þess sem félagið fær 1 krónu af hverjum keyptum lítra hjá viðskiptavinum með kort frá N1 og í hóp 414 sem er hópur Tindastóls. Að auki fær fólk 5 krónu afslátt sem skiptist í 3 krónu afslátt á dæluverði og 2 krónur í formi punkta auk ýmiskonar afsláttarkjara á bíla- og rekstarvörum.
Gunnar Þór Gestsson formaður Tindastóls sagði í spjalli við Feyki: „við munum ganga í öll hús á Sauðárkróki og bjóða viðskiptakortið. Þeir sem fyrir eru geta sent póst á n1@n1.is og skráð sig í hóp 414.“