Tindastóll/Hvöt í undanúrslitum Lengjubikarsins
Tindastóll/Hvöt er eitt fjögurra liða sem er komið í undanúrslit B-deildar Lengjubikarsins. Hin liðin eru Afturelding, Njarðvík og Völsungur.
Á fimmtudaginn verða undanúrslitin leikin og leika þá saman Völsungur og Tindastóll/Hvöt annarsvegar og Afturelding og Njarðvík hinsvegar.
Leikurinn okkar verður í Boganum og hefst kl. 19:00. Þessi sömu léku saman í Soccerademótinu í vetur og þá höfðum við betur. En lið Völsungs hefur heldur betur rétt úr kútnum síðan þá og leikið vel í undanförnum leikjum. Það má því búast við erfiðri rimmu á fimmtudaginn.
Enn glíma nokkrir sterkir leikmenn okkar við meiðsli en það koma bara aðrir í þeirra stað. Feykir.is skorar á þá sem verða fyrir norðan að fjölmenna á leik.