Tindastóll/Hvöt mætir ÍH í kvöld - Allir á völlinn

Strákarnir í Tindastól/Hvöt mæta í kvöld liði ÍH en leikurinn mun fara fram á Sauðárkróksvelli og hefjast klukkan 20:00. Liðið réði í gær nýjan þjálfara sem jafnframt er leikmaður liðsins og mun þetta verða fyrsti leikurinn undir hans stjórn en eftir fyrstu þrjár umferðir mótsins er liðið án stiga.

Þá munu strákarnir í öðru flokki taka á móti liði Fjölnis/Bjarnarins í Valitor bikarnum á sunnudag en sá leikur hefst klukkan 14:00.

Nú er bara að finna útifötin, skella á sér húfu og mæta á leikinn því strákarnir þurfa á öllum okkar stuðningi að halda til að koma sér á beinu brautina eftir erfiða byrjun.

Fleiri fréttir