Tindastóll/Neisti-Völsungur 3-3 í hörkuleik

Stelpurnar í 4. fl. kvenna Tindastóls/Neista tóku á móti stöllum sínum frá Húsavík fyrir helgi og var leikurinn bráðfjörugur og boltinn lá í netinu sex sinnum. Völsungsstelpurnar skoruðu fyrsta mark leiksins á 4. mín en Guðný Vaka Björnsdóttir jafnaði á 22. mín. Staðan 1-1 í fyrri hálfleik.

Seinni hálfleikur byrjaði vel fyrir Tindastólsstelpurnar þegar Hugrún Pálsdóttir kom okkar liði yfir á 37. mín. 2-1. Adam var hinsvegar ekki lengi í paradís, ekki frekar en hún Eva, því Völsungsstelpurnar jöfnuðu á 55. mín og komust síðan yfir á 60. mín 3-2.  Tindastólsstelpurnar lögðu þó ekki árar í bát og sýndu mikinn karakter þegar Guðný Vaka Björnsdóttir jafnaði á 65. mín 3-3.

Þess má geta að þetta var annar leikur stelpnanna í Íslandsmótinu en 2. júní spiluðu þær við Hött/Einherja á Sauðárkróksvelli og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu 7-1.  Markaskorar Tindastóls í leiknum voru Guðný Vaka Björnsdóttir þrjú mörk, Hugrún Pálsdóttir tvö mörk, Valdís Ósk Óladóttir og Kolbrún Ósk Hjaltadóttir með sitt markið hvor.

/Tindastóll.is

Fleiri fréttir