Tindastólsmenn heimsækja Vesturbæinn í kvöld
Fyrsti leikur í einvígi Tindastóls og KR um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik fer fram í DHL-höllinni í Reykjavík í kvöld. Ekki vantar spenninginn í stuðningsmenn Tindastóls sem gera sér vonir um gott gengi. Þegar tölfræðin er skoðuð er kannski ekki tilefni til bjartsýni því Stólarnir hafa ekki unnið leik í Íslandsmóti í DHL-höllinni síðan árið 2000.
Talnagúrúið Rúnar Birgir Gíslason sendi Feyki nokkra fróðlega punkta varðandi einvígi liðanna. „Þetta er í fjórða skipti sem þau mætast í úrslitakeppni en fyrsta skipti sem það er ekki í 8 liða úrslitum. KR vann fyrri einvígin öll; einvígið 1998 2-1, 2000 vann KR 2-0 og 2012 vann KR 2-0.
Þá var síðasti sigur Tindastóls í DHL höllinni í Íslandsmóti þann 14. desember 2000 en liðin hafa leikið 34 sinnum á heimavelli KR. Tindastóll hefur unnið fimm sinnum.
Tindastóll hefur einu sinni komist í úrslitaeinvígið, 2001 og tapaði 3-1 fyrir Njarðvík. KR hefur átta sinnum komist í úrslitaeinvígið frá því úrslitakeppnin byrjaði 1984. Þeir hafa unnið sex sinnum og tapað tvisvar,“ segir Varmhlíðingurinn Rúnar Birgir.
Aðeins einn leikmaður KR virðist geta státað af áberandi skagfirskum genum en það er Darri Freyr Atlason, sonur Atla Sveins og Jennýjar Leifs og þar með bróðursonur utanríkisráðherra. Önnur skagfirsk framsóknartengsl eru í KR en fyrrum oddviti Framsóknarflokksins á Sauðárkróki, Björn Magnús Björgvinsson, er pabbi hins skeggprúða Brynjars Þórs. Brynjar er þó fæddur í Reykjavík. Þá má nefna ein tengsl til viðbótar en Magni Hafsteinsson mun vera tengdasonur Kára Mar, aðstoðarþjálfara Tindastóls.
Talsverður fjöldi Tindastólsmanna hafa spilað með KR í gegnum tíðina og láta vel af veru sinni þar. Minna hefur verið um að KR-ingar hafi skilað sér á Krókinn en þó má nefna Palla Kolbeins til sögunnar í því sambandi.
Stuðningsmenn Tindastóls eru að sjálfsögðu hvattir til að fjölmenna á leikinn en fyrir hina sem ekki komast er rétt að geta þess að viðureignin er sýnd á Stöð2Sport í kvöld.