Tindastólsmenn nældu í gott stig í Breiðholtinu

Tindastóll sótti Reykjavíkur-Leikni heim í gær í fyrstu umferð 1. deildar í karlafótboltanum. Liðin skiptust á jafnan hlut, gerðu sitt hvort markið en það voru Tindastólsmenn sem komust yfir seint í leiknum en voru ekki lengi í paradís því heimamenn jöfnuðu skömmu síðar.

Tindastólsmenn voru líklegri í fyrri hálfleik og fengu ágæt tækifæri í byrjun leiks. Strax á 11. mínútu hefði Leiknismaðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson átt að líta rauða spjaldið fyrir geðveika tveggja fóta tæklingu með talsverðu tilhlaupi en dómarinn sýndi honum aðeins gult. Það var Atli Arnarson sem lá í valnum en hélt þó áfram leik. Stólarnir héldu áfram að fá sæmilega sénsa og þá sérstaklega eftir vel útfærðar skyndisóknir en staðan í hálfleik 0-0.

Heimamenn komust betur inn í leikinn í síðari hálfleik en skyndisóknir Tindastóls voru hættulegar og eftir eina slíka skoraði splunkunýr leikmaður Stólanna, Elvar Páll Sigurðsson á 78. mínútu eftir að hafa komist inn fyrir vörn og markmann Leiknis. Elvar Páll er bróðir Arnars Sig og skipti í Tindastól úr Breiðabliki núna á miðvikudaginn. Tveimur mínútum síðar fengu heimamenn aukaspyrnu á vinstri kanti og sendu boltann fyrir markið, vörn Tindastóls náði ekki að koma boltanum frá og Indriði Áki Þorláksson jafnaði metin. Eftir þetta lögðu Leiknismenn allt í sölurnar til að ná fram sigri en á ótrúlegan hátt náðu þeir að misnota nokkur dauðafæri og vörn Stólanna og Sebastian Furness í markinu björguðu því sem bjargað varð. Lokatölur 1-1.

Ágæt úrslit í fyrsta leik hjá Tindastólsmönnum en það verður vonandi gaman að fylgjast með liðinu í sumar. Liðið var þannig skipað að Sebastian Furness stóð milli stanganna líkt og síðastliðið sumar, í vörninni voru Edvard Börkur, Björn Anton, Fannar Örn (Arnar Skúli 68) og Ingvi Hrannar. Ruben M. Resendes, Atli og Elvar voru inni á miðjunni en Steven Beattie (Árni Arnars 82) og Arnar Sigurðsson (Benjamín JG 73) á köntunum en fremstur var Chris Tsonis.

Næsti leikur Tindastóls er í Borgunarbikarnum en þá mæta strákarnir liði Dalvíkur/Reynis í Boganum á Akureyri en leikurinn fer fram 14. maí kl. 20:00. Ekki er langt síðan að um meters þykkt snjólag var á Dalvíkurvelli og því ekki sénst að spila á honum. Fyrsti heimaleikur Stólanna í 1. deildinni verður gegn Völsungi en hann er áætlaður laugardaginn 18. maí kl. 14:00 en óvíst er hvort Sauðárkróksvöllur verður í leikhæfu ástandi. Eitthvað er þó farið að hlýna í Skagafirði og ekki laust við að grasið væri grænleitara í dag en í gær. En það segir nú kannski ekki mikið.

Að sjálfsögðu voru snillingarnir hjá Stólunum snöggir að setja saman myndband úr leiknum í gær og er hægt að skoða það á Tindastóll TV.

http://www.youtube.com/watch?v=Uk8unLaUuPo&list=UUkVj8TTHx4VQrHA9PdWITJQ&index=1

Fleiri fréttir