Tindastólsstúlkur með silfur á Íslandsmóti

Á heimasíðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls er sagt frá því að stelpurnar í 7. flokki urðu í gær í öðru sæti í Íslandsmótinu annað árið í röð eftir úrslitamótið sem haldið var í Keflavík. Heimastúlkur urðu Íslandsmeistarar. 9. flokkur drengja vann B-riðilinn hér heima og stúlknaflokkurinn vann tvo og tapaði tveimur í C-riðli á Akranesi.

Keflvíkingar eru með yfirburðalið í 7. flokki stúlkna en þar fyrir neðan eru öll hin fjögur liðin afar jöfn. Stelpurnar unnu KR 32-29 og Hrunamenn 31-25, en töpuðu fyrir Njarðvík 16-30 og Keflavík 52-15. Þetta dugði til annars sætis í riðlinum og vill heimasíðan óska stelpunum innilega til hamingju með árangurinn.

10. flokkur drengja vann B-riðill hér heima á laugardaginn. Njarðvíkingar sendu ekki lið til keppni og því var mótið klárað á einum degi.

Úrslit leikja okkar manna; Tindastóll- Skallagrímur; 63-44, Tindastóll- Fjölnir 67-46, Tindastóll- Breiðablik 78-35. Með þessum sigrum er liðið komið í A-riðil á ný og byrjar næsta tímabil þar. Stigaskor leikmanna; Pétur 65, Viðar 36, Kristinn 27, Bjarni 23, Finnbogi 22, Haukur 8, Sigurður Óli 8, Ágúst 6, Friðrik 6, Ingi Sveinn 3, Sighvatur 1, Elvar. Flottur árangur hjá strákunum.

Stelpurnar í stúlknaflokki kepptu í C-riðli á Akranesi. Leikin var tvöföld umferð við heimastúlkur í ÍA og KFÍ frá Ísafirði. Fyrri dagurinn hjá stelpunum var ekkert rosalega góður, en sigur vannst þó á Skagastúlkum 37-33. Ísabella var stigahæst með 14 stig, Ólína gerði 10, Helena 7, Þóra 4 og Helga 2. Næst kom skellur gegn KFÍ 28-51. Stigin skoruðu þær Ólína 11, Ísabella 6, Guðlaug 4, Helga 3 og þær Þórdís og Þóra 2 hvor.

Á sunnudag var allur annar bragur á leik stelpnanna þó fyrri hálfleikurinn hafi ekki verið góður á móti KFÍ, en staðan í hálfleik var 9-22 fyrir KFÍ. Í seinni hálfleik náðu stelpurnar að spila magnaða vörn og vinna sig inn í leikinn aftur með gríðarlegri baráttu. Tindastóll skoraði fjögur síðustu stigin í venjulegum leiktíma og jafnaði leikinn 36-36 svo framlengja þurfti. KFÍ-stelpurnar voru einbeittari í framlengingunni og unnu þriggja stiga sigur 41-38. Ólína var stigahæst í leiknum með 29 stig, Þóra var með 8, Guðlaug 5, Ísabella og Helga 4 hvor og þær Elín og Helena 2 hvor.

Fleiri fréttir