Tóbakslaus bekkur
Samkeppninni Tóbakslaus bekkur meðal 7. og 8. bekkja í skólum landsins skólaárið 2012-2013 er lokið og vann 7. bekkur Varmahlíðarskóla til verðlauna.
Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt. Til að eiga möguleika á verðlaunum þurftu bekkirnir að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Þetta er annað árið þar sem það er gert að skilyrði að lokaverkefnum sé skilað á rafrænu formi
10 bekkir frá 9 skólum sem sendu inn lokaverkefni unnu til verðlauna.
Hér má sjá myndbandið sem Varmahlíðarskóli sendi frá sér.
Hér má sjá fréttina af vef Landlæknisembættisins.