Tókst þú þátt í leikritinu Svefnlausa brúðgumanum árið 1970?

 Leikfélag Sauðárkróks leitar nú að myndum, dagblaðaúrklippum, viðtölum eða minningum frá uppsetningu Verkakvennafélagsins Öldunnar á gamanleikritinu Svefnlausa brúðgumanum eftir Arnold og Bach á Sæluviku árið 1970. Þar sem Leikfélag Sauðárkróks æfir nú þennan sama svefnlausa brúðguma fyrir næstu Sæluviku væri gaman að geta sýnt myndir eða minningar frá uppsetningunni fyrir 40 árum (t.d. í leikskrá eða á veggspjöldum), til dæmis til að bera saman búninga, förðun, leikmynd og annað.

Þeir sem tóku þátt í uppsetningunni, eiga myndir eða annað sem tengist sýningunni og eru tilbúnir að lána afnot af slíku, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Sigurveigu í síma 893 6358 eða á netfangið leikfelagsaudarkroks@simnet.is

Fleiri fréttir