Tónleikar á Dvalarheimilinu á Króknum

Strengjadeild Tónlistarskóla Skagafjarðar heldur tónleika á Dvalarheimilinu á Króknum í dag, föstudag kl. 14:30. Meginþema tónleikanna verður kvikmynda og söngleikjatónlist en einnig mun koma fram sellódúett og tríó sem skipar fiðlu, selló og kontrabassaleikara.

Nemendur eru á aldrinum 4 ára til 16 ára auk eldri snillinga líkt og Merete frá Hrauni.

Allir velkomnir.

 

 

Fleiri fréttir