Tónleikarnir á Dvalarheimilinu
Strengjasveit Tónlistarskóla Skagafjarðar mun í dag klukkan 17:15 spila á tónleikum á Dvalarheimilinu við Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks.
Strengjadeildin hefur farið árlega og heimsótt Dvalarheimilið, venjulega fyrir jólin, en núna ákváðu þau að breyta út af vananum og fara þess í stað í febrúar. Á efnisskránni eru eingöngu íslensk tónlist, þjóðlög og önnur íslensk lög. Einnig verður upplestur á nokkrum íslenskum vísum og sögum.
Á tónleikunum koma fram börn og unglingar á aldrinum 3 ára til tvítugs og spila af fingrum fram.
Stjórnandi er Kristín Halla Bergsdóttir og undirleikar er Thomas Higgerson. Strengjasveitin vill sérstaklega taka fram að allir eru velkomnir á tónleikana.