Tónlistarkennara vantar í V- Húnavatnssýslu

Tónlistarskóli Vestur-Húnavatnssýslu hefur auglýst eftir tónlistarkennara til starfa skólaárið 2011-2012 með áherslu á kennslu á píanó, strengjahljóðfæri, tré og málmblásturshljóðfæri. Tónlistarskóli Vestur-Húnavatnssýslu var stofnaður 1969 og hefur starfað óslitið síðan. Sl. ár hafa 100-120 nemendur stundað nám við skólann og tónlistarkennarar hafa verið 6-8.

Stefna tónlistarskólans er að bjóða uppá fjölbreytt tónlistarnám og því telur sveitarfélagið æskilegt að kennarar skólans séu færir um að kenna á fleiri en eitt hljóðóðfæri. Kennslustaðir eru á Hvammstanga, Laugarbakka og Borðeyri og óhætt er að segja að í Húnaþingi vestra er mjög öflugt og fjölbreytt tónlistarlíf.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2011 en nánari upplýsingar veitir Elinborg Sigurgeirsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Vestur-Húnavatnssýslu í síma 451-2660 & 864-2137 og á netfanginu borg@simnet.is

Fleiri fréttir