„Tónverk frá nemendum Varmahlíðarskóla“

Nemendur 5. og 6. bekkjar í Varmahlíðarskóla fengu það skemmtilega verkefni að búa til tónverk og hafa til viðmiðunar einhverja af þjóðsögunum okkar. 5. bekkur valdi söguna um Drangey og kusu að hafa tröll sem þema, en 6. bekkur valdi sér söguna Móðir mín í kví kví.

Á heimasíðu skólans segir að nemendur hafi unnið verkin með aðstoð Kristínar Höllu Bergsdóttur, tónmenntakennara, og að hún hafi aðeins gefið rammann utan um verkið og haldið upplýsingum saman, en sköpunin kom algjörlega frá krökkunum sjálfum. Þetta tókst rosalega vel og hér má lesa nánar um verkin og hlusta.

Fleiri fréttir