Tvær áhugaverðar sýningar í Minjahúsinu í sumar

Fyrirhugað er að setja upp tvær sýningar í Minjahúsinu á Sauðárkróki í sumar. Önnur sýningin kallast Framúrskarandi fólk og verða tónskáldið Eyþór Stefánsson (1901-1999), Jóhannes Geir listmálari (1927-2003) og skáldkonan Guðrún frá Lundi (1887-1975) umfjöllunarefni hennar.

Jafnframt verður sett upp sýning þar sem hægt verður að sjá merkisgripi og valda gripi úr Byggðasafni Skagfirðinga, sem nýkomnir eru, eða eru nýlega rannsakaðir.

Stefnt er á opnun sýninganna 10. júní n.k.

Fleiri fréttir