Tvær milljónir í Selasetrið á ári

Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra var lagt fram erindi Selaseturs Íslands ehf. þar sem óskað er eftir því að gerður verði skriflegur samningur milli þess og Húnaþings vestra til allt að 6 ára er kveði á um árlegar styrkveitingar Húnaþings vestra til Selaseturs Íslands.

Í erindinu kemur fram að undangenginn flutningur á safni Selasetursins í nýjan og glæsilegan sýningarsal hafi haft í för með sér umtalsverðan kostnað. Fjármögnun vegna flutnings safnsins þarf að tryggja og er gerð samnings af þessu tagi liður í skipulagðri áætlun þar að lútandi. Byggðarráð Húnaþings vestra samþykkir að verða við erindi Selaseturs Íslands ehf. og felur skrifstofustjóra að undirrita fyrirliggjandi drög að samningi milli málsaðila þar sem m.a. kemur fram að Húnaþing vestra skuldbindi sig til að leggja Selasetri Íslands ehf. til árlegan styrk að fjárhæð kr. 2.000.000- Samningurinn er til 6 ára, 2012-2017. Markmið samnings þessa er að undirbyggja enn frekar náttúrutengda ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.

Fleiri fréttir