Tvær nýjar útgáfu frá Þ Kollektiv

Jóhannes Þorsteinn Gunnarsson á Kollafossi í Miðfirði er stofnandi útgáfufélagsins Þ Kollektiv.
Jóhannes Þorsteinn Gunnarsson á Kollafossi í Miðfirði er stofnandi útgáfufélagsins Þ Kollektiv.

Þann fyrsta þessa mánaðar kynnti hið húnvetnska útgáfufélag Þ Kollektiv sína fimmtu og sjöttu útgáfu með efni frá tveimur hljómsveitum. Í þetta skiptið er leitað langt út fyrir landsteinana, því að sveitirnar koma ala leið frá Hollandi og Indónesíu. Um er að ræða Zweite Tafelmusik efitr Larmschutz og Þolarity eftir Bottlesmoker. Hægt er að nálgast útgáfurnar frítt á heimasíðu og Bandcamp síðu Þ Kollektiv.

Jóhannes Gunnar Þorsteinsson á Kollafossi í Miðfirði stofnaði Þ Kollektiv árið 2015 og hefur félagið gefið út sex útgáfur á síðastliðnum tveimur árum, stafrænt og í föstu formi. Áherslan er þó einkum á stafræna útgáfu og er efnið aðgengilegt á Bandcamp, heima síðu Þ Kollektiv, og á helstu tónlistarveitum, til dæmis Spotify og iTunes. Félagið leggur einnig áherslu á að gefa út efni undir opnum leyfum á borð við creative commons. Að sögn Jóhannesar gerir það fólki kleyft að nota listaverk og hljóðverk frá Þ Kollektiv í sínum verkum að vild. Þ Kollektiv vilji með þessu stuðla að heilsusamlegri listsköpun fyrir alla.

Hér er hægt að skoða alla útgáfu Þ Kollektiv.

 

 

Fleiri fréttir