Tveggja stiga tap fyrir KR
Drengjaflokkur Tindastóls í körfubolta lauk keppni sinni á Íslandsmótinu á sunnudagskvöld þegar strákarnir töpuðu fyrir KR-ingum með tveggja stiga mun 82-80 í DHL-höllinni.
KR-ingar unnu B-riðilinn en okkar strákar urðu í 4. sæti A-riðils. Að sögn Borce þjálfara var liðið að spila vel, en þó hafi vörnin verið hálf gloppótt á köflum.
Strákarnir fengu tækifæri til að sigra leikinn þegar Pálmi átti þriggja stiga skot þegar fáar sekúndur voru eftir en skotið geigaði. Ingvi náði frákastinu en hans skot geigaði einnig.
Pálmi, Guðmundir, Einar, Ingvi og Tobbi voru allir að spila vel. Innkoma Gumma styrkir liðið mikið en hann hefur verið frá vegna meiðsla í hnjám.
Því miður liggur stigaskor ekki fyrir eftir leikinn, en Borce hélt að allir hefðu skorað sem voru á skýrslu.