Tveir leikir hjá Tindastóli gegn Njarðvík í kvöld
Það verður tvöföld keppni í körfuboltanum í kvöld er Tindastóll tekur á móti Njarðvík annars vegar í síðasta leik deildarkeppninnar og svo drengjaflokkur í síðasta leik riðlakeppninnar strax á eftir.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls er nánast sami mannskapur í drengjaflokki og meistaraflokki Njarðvíkur, fyrir utan útlendinga, þannig að róðurinn gæti verið erfiður fyrir gestina í seinni leiknum
Eftir leik ÍR og Keflavíkur sl. mánudagskvöld varð ljóst að Tindastólsliðið er komið áfram í úrslitakeppnina þar sem ÍR, sem mögulega gat náð Tindastóli að stigum, tapaði sínum leik og verða ekki með. Í kvöld ræðst þá hvort Tindastóll haldi 7. sætinu eða missi það til gestanna sem nú sitja í 8. sæti. Ekki dugir minna fyrir gestina en að vinna með 8 stiga mun til að komast upp fyrir Stólana þar sem Tindastóll vann Njarðvík í fyrri leik liðanna 85-93 og innbyrðis viðureignir liðanna gilda.
Tveir lykilmenn meistaraflokksins verða ekki með í kvöld þar sem Helgi Freyr er í gipsi eftir meiðsli í síðasta leik og Igor Tratnik tekur út umdeilt leikbann.
Þá er ekkert annað í stöðunni en að taka kvöldið frá og hvetja bæði lið Tindastóls til sigurs í kvöld og til að láta sér líða betur í sitjandanum þá væri tilvalið að kaupa eina góða sessu á mann sem strákarnir úr frumkvöðlafræði FNV ætla að bjóða til sölu í kvöld.
Fyrri leikurinn hefst kl. 19:15 og fjótlega eftir leikslok sá seinni.