Tvö þúsund birkiplöntur gróðursettar við Kolku

Glaðbeittur hópur ungmenna frá Blöndustöð Landsvirkjunar sveiflar haka og ræktar nýjan Brimnesskóg í Skagafirði.
Glaðbeittur hópur ungmenna frá Blöndustöð Landsvirkjunar sveiflar haka og ræktar nýjan Brimnesskóg í Skagafirði.

Ungmenni frá Blöndustöð Landsvirkjunar gróðursettu nýlega tvö þúsund birkiplöntur til endurheimtunar Brimnesskóga í grennd við ána Kolku Skagafirði. Landsvirkjun hefur lagt verkefninu lið um árabil undir yfirskriftinni “Margar hendur vinna létt verk“.

Einungis er gróðursett birki og reyniviður sem upprunnin er í Skagafirði. Að þessu sinni var aðallega gróðursett birki sem upprunnið er í Gljúfurárgili í Blönduhlíð. En einnig var gróðursett kynbætt birki sem á rætur að rekja í Geirmundarhólaskóg í Hrolleifsdal.

Gljúfurárgilsbirki sem ræktað er við kjöraðstæður á höfuðborgarsvæðinu er kröftugt, blaðstórt og beinvaxið. Birkið sem notað er í verkefninu hefur verið rannsakað af sérfræðingum við Háskóla Íslands og er þess að vænta að niðurstöður úr þeim rannsóknum verði kynntar á þessu ári.

Brimnesskógar félag, vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lagt hafa endurheimt Brimnesskóga lið á einn eða annan hátt./ Fréttatilkynning

Fleiri fréttir