Úðabrúsamálningin hreinsuð
Við sögðum frá því í gær að einhver eða einhverjir hefðu sóðað út með úðabrúsa á Sauðárkróki bæði ártalsljósið á Nöfum og umferðarskilti við Villa Nova. Líklega hefur fréttin vakið samvisku gerandans því búið er að hreinsa það sem sóðað var út.
Gunnar Pétursson verkstjóri hjá bænum er ánægður með framtakssemi þess sem hreinsaði málninguna og vill koma þakklæti á framfæri en hann veit ekki hver var hér að verki.