Umferðaróhapp í Blönduhlíð
Engin slys urðu á fólki er bifreið hafnaði utanvegar á gatnamótum Siglufjarðar- og Norðurlandsvegar í Blönduhlíð í Skagafirði í morgun. Ökumaður bílsins sem ók fram Siglufjarðarveginn náði ekki að stöðva á gatnamótunum og skautaði yfir þjóðveg 1 og keyrði niður skilti hinum megin vegarins. Bíllinn er óökufær og líklega ónýtur að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki.
Nú síðdegis voru björgunarsveitir kallaðar út til að leita að manni sem saknað var. Fór leitin fram utan Sauðárkróks en ekki fengust nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.