Umfjöllun um lokahóf Ræsingar í Feyki - leiðrétting
Fjallað er um lokahóf Ræsingar í Skagafirði í Feyki sem kom út í gær, þar er rætt við Hildi Þóru Magnúsdóttur og Regin Grímsson sem hlutu fyrstu verðlaun í samkeppni um góðar viðskiptahugmyndir sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands efndi til í samstarfi við Kaupfélag Skagfirðinga og Sveitarfélagið Skagafjörð.
Upprunalega stóð til að fyrstu verðlaun yrði ein milljón króna og fram kemur í greininni að þau hafi deilt verðlaunafénu á milli sín. Hið rétta er að ákveðið var að hækka upphæðina um helming, þ.e. í tvær milljónir og skiptist það svo að verkefni Hildar Þóru og Regins hlutu 900 þúsund hvor og verkefni Harðar Steingrímssonar hlaut 200 þús.kr. í hvatningarverðlaun.
Leiðréttist það hér með, beðist er velvirðingar á þessu.