Umgengni á losunarstað ábótavant

Íbúi á Sauðárkróki hafði samband við Feyki og vildi koma því á framfæri að umgengni á svæði sunnan við Flokku, sem ætlað er til að losa garðúrgang, væri verulega ábótavant.
Meðfylgjandi mynd var tekin á losunarsvæðinu nýlega og eins og sjá má hefur þarna verið hent pokum með garðaúrgangi en ætlast er til að pokarnir séu losaðir og þeim hent á viðeigandi stað, enda eiga þér ekki heima með lífrænu rusli eins og garðaúrgangi.