Umhverfi Sauðár - ertu með hugmynd?

Mótum Sauðárkrók saman til framtíðar var yfirskrift íbúaþings sem haldið var í tengslum við Aðalskipulagsvinnu fyrir Sauðárkrók árið 2009. Meðal þess sem íbúar settu í forgang á þinginu var vinna við opin svæði innan bæjarins. Hjá Sveitarfélaginu er nú unnið að þessum málum og áherslan lögð á að móta og bæta umhverfið, tengja saman stígakerfi og opin svæði.

Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að í sumar verði lögð áhersla á fegrun umhverfis neðri hluta Sauðárinnar, frá Sæmundarhlíð að Borgargerði. Svæðið er afmarkað á meðfylgjandi skýringarmynd sem tekin er úr rammaskipulagstillögu sem Alta vann í samvinnu við sveitarfélagið og íbúa.

Sveitarfélagið leitar nú til íbúa með hugmyndir um hvernig þetta svæði ætti að líta út, og spyr hvað fólki finnst að leggja ætti áherslu á við hönnun svæðisins og  hvetur það til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa með því áhrif á mótun umhverfis Sauðár.

Hugmyndum á að skila inn í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins sem er aðgengileg af heimasíðunni www.skagafjordur.is. Einnig er hægt að koma hugmyndum og ábendingum á framfæri í netfangið skipulag@skagafjordur.is

Fleiri fréttir