Umhverfisdagar í Skagafirði um helgina

Það er yfirleitt af nógu að taka þegar fegrun umhverfisins er annars vegar. Sveitarfélagið Skagafjörður vill hvetja íbúa til að taka höndum saman og fegra umhverfi húsa sinna og nærliggjandi opin svæði. Mynd: AGS.

Sveitarfélagið Skagafjörður efnir til umhverfisdaga um komandi helgi, 10. - 12. júní. Takmarkið er að fá snyrtilegra og fegurra umhverfi. Því er mikilvægt að íbúar taki höndum saman, tíni rusl og snyrti til í og við lóðir sínar og á nærliggjandi opnum svæðum. 

Ruslapokar verða bornir í hús á þéttbýlissvæðum föstudaginn 10. júní og safnað saman mánudaginn 13. júní. Mikilvægt er að loka pokunum vel og skilja þá eftir við gangstéttina að kvöldi sunnudagsins. Garðaúrgangur verður ekki hirtur í hreinsunarátakinu einungis lokaðir ruslapokar.

„Við hvetjum alla íbúa og forsvarsmenn fyrirtækja í Skagafirði að taka höndum saman í að bæta umhverfi okkar og fegra,“ segir í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Skagafirði. 

Fleiri fréttir