Umsóknir óskast í Húnasjóð
Á heimasíðu Húnaþings vestra er auglýst eftir umsóknum í Húnasjóð en sjóðinn stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.
Skriflegar umsóknir um styrk vegna ársins 2011 ásamt lýsingu á námi skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 20. júlí n.k.