UMSS sendir 5 keppendur á Reykjarvíkurleikana
Frjálsíþróttahluti Reykjavík International Games fer fram í dag laugardaginn 21. janúar og hefst keppni kl. 14:30 og lýkur kl.17:00. Til leiks mæta flestir af fremsta frjálsíþróttafólki landsins, þar á meðal húnvetnsku systurnar Helga Margrét og Guðrún Gróa Þorsteinsdætur sem og fimm keppendur frá UMSS.
Frá UMSS keppa þau Björn Margeirsson, Fríða Ísabel Friðriksdóttir, Guðrún Ósk Gestsdóttir, Jóhann Björn Sigurbjörnsson og Þorgerður Bettína Friðriksdóttir en búast má við hörku keppni í flestum greinum.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
Karlar: 60m, 60m grind, 400m, 800m, 3000m, langstökk, stangarstökk, 4x200m boðhlaup
Konur: 60m, 60m grind, 400m, 800m, hástökk, langstökk, kúluvarp, þríþraut, 4x200m boðhlaup
Á heimasíðu FRÍ segir að átta erlendir keppendur séu staðfestir til keppni á þessu ári, frá hinum ýmsu löndum. Jolanda Keizer frá Hollandi (sjöþraut PB 6370) og Ellinore Hallin frá Svíþjóð (sjöþraut PB 5635) keppa í þríþraut (60m grindahlaup, kúluvarp, langstökk) á móti sterkustu sjöþrautar konum Íslendinga, Sveinbjörgu Zophoníasdóttur, Örnu Stefaníu Guðmundsdóttur og Maríu Rún Gunnlaugsdóttur. Helga Margrét Þorsteinsdóttir mun hins vegar spreyta sig í hástökki og 800m hlaupi. Í kúluvarpi etur Ásdís Hjálmsdóttir kapp við sjöþrautarstúlkurnar og Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur. Verður gaman að sjá hvernig systrunum úr Vestur-Húnavatnssýslum muni ganga en þær eru í fremstu röð frjálsíþróttafólks landsins.
Sjá nánar um keppnina á heimasíðu FRÍ.