Undanúrslitaleikur í Síkinu í kvöld

Það verður stórleikur í Síkinu í kvöld þegar Tindastóll fær kóngana úr Vesturbænum, KR, í heimsókn í undanúrslitum Powerade bikarkeppninnar. Það er mikið undir en með sigri kæmust Stólarnir í sjálfan úrslitaleikinn. Stuðningsmenn eru hvattir til að hrista af sér blótin og fjölmenna í Íþróttahúsið á Sauðárkróki sprækir sem lækir.

Á heimasíðu Tindastóls segir að þetta sé í fjórða sinn sem Tindastóll kemst í undanúrslit bikarkeppninnar, en þangað komust þeir fyrst 1999 þar sem liðið tapaði fyrir Keflavík 112 - 98. Næst var árið 2002 og aftur var áfangastaðurinn Reykjanesið, nú var leikið gegn Njarðvík sem vann sannfærandi 86 - 66. Í fyrra lágu Stólarnir fyrir KR í DHL-höllinni en nú er annar leikur og allt hægt.

Fleiri fréttir