Undir álögum álfa og villtrar náttúru

Þýska sjónvarpsstöðin Bayerischer Rundfunk kom til Íslands um miðjan nóvember og eyddi nokkrum dögum í Skagafirði og Austur-Húavatnssýslu. Villt náttúran og sagan er það sem heillar, hross, kindur, hundar og álfar. Meðal þeirra sem koma fram í þættinum er Hlín C. Mainka í Ásgarði í Skagafirði og Karólína í Hvammshlíð en einnig er komið við á Hegrabjargi í Hegranesi sem og á Stafni í Svartárdal.
Íslensk náttúran er alltaf heillandi þó svo að bleyta og kuldi geri umhverfið hryssingslegt. Hrossin leika stórt hlutverk í þættinum svo ekki sé talað um álfana í Hegranesinu. Forvitnilegt er að horfa á þáttinn þó svo þýskukunnáttan sé ekki mikil en hann má sjá HÉR