Undirbúningur fyrir landsmót kominn á fullt

Á fundi atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar í vikunni kynnti Sviðsstjóri stöðu mála varðandi undirbúning Landsmóts hestamanna sem fram fer á Vindheimamelum í sumar.

Undirbúningur mótsins er í fullum gangi og miðasala hefst síðar í mánuðinum. Farið verður í auglýsingaátak á næstu vikum og leitað eftir samstarfi við þjónustuaðila og hrossaræktendur um þátttöku í því en Landsmót stendur mjög illa fjárhagslega eftir mikinn kostnað en enga innkomu á sl. ári.

Fleiri fréttir