Undirbúningur fyrir þorrablót á Hvammstanga í fullum gangi
Þorrablótin eru haldin víða enda ekkert eins hollt fyrir sálartetrið en sitja til borðs með súrum og kæstum vinum, syngjandi glaður og skemmta sér yfir heimagerðum skemmtiatriðum.Tíðindamanni Norðanáttarinnar tókst að lauma sér inn baksviðs þar sem verið að æfa fyrir þorrablótið á Hvammstanga og fékk að smella nokkrum myndum af leikurunum í léttri sveiflu og birtast myndirnar hér.
Að venju hvílir leynd yfir því sem tekið verður fyrir á Blótinu en ýmsar spurningar liggja í loftinu. Var Gærumarkaðurinn að þessu sinni upp í reiðhöll ? Hvað gerist eiginlega á kaffistofunni í Kaupfélaginu ? Verður nýi rútubílstjórinn jafn tíður gestur í skemmtiatriðunum og Sigga bókó ? Hver er eins árs um þetta leyti ? Er búið að taka nýja barnapottinn í notkun í sundlauginni ?
Svörin við þessum spurningum fást á þorrablótinu annað kvöld.