Undirbúningur fyrir úrtöku og Landsmót hestamanna
Hestamannafélagið Skagfirðingur býður börnum, unglingum og ungmennum sem stefna á úrtöku fyrir Landsmót boðið upp á æfingartíma. Æfingar fara fram föstudaginn 3. og laugardaginn 4. júní á Hólum í Hjaltadal. Kennarar verða Pétur Örn Sveinsson og Heiðrún Ósk Eymundsdóttir.
Þeir sem vilja taka þátt skulu hafa samband við þau fyrir kl. 20 fimmtudagskvöldið 2. júní. petur@saurbaer.is eða 8645337 eða heidrun@saurbaer.is 8495654.
„Hægt verður að geyma hestana upp á Hólum yfir nóttina, en fólk verður að koma sjálft með hey,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Umrædd auglýsing átti að birtast í Sjónhorni vikunnar sem kom út í dag en vegna mistaka fór hún ekki í ritið. Samkvæmt tilkynningu frá Nýprent er beðist velvirðingar á þessum leiðu mistökum.