Undirritað á Norðurlandi vestra

Oddviti Húnavatnshrepps undrritar.
Oddviti Húnavatnshrepps undrritar.

Illugi Gunnarsson, mennta-og menningarmálaráðherra var á þriðjudaginn á ferð um Norðurland vestra og undirritað þjóðarsáttmála um læsi, ásamt fulltrúum sveitarfélaganna á svæðinu og fulltrúa Heimilis og skóla.

Verkefnið er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og samtakanna Heimili og skóli. Markmið verkefnisins er að við lok grunnskóla geti öll skólabörn lesið sér til gagns en lestrarfærni er forsenda virkrar þátttöku í lýðræðissamfélagi.

Á þriðjudaginn var sáttmálinn undirritaður í Árskóla á Sauðárkróki af þeim Illuga, Ástu Pálmadóttur, sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Hrund Pétursdóttur, fulltrúa Heimilis og skóla. Sama dag komu fulltrúar sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu, Strandabyggðar og Húnaþings vestra saman á Blönduósi þar sem hvert sveitarfélaganna undirritaði sáttmálann, ásamt þeim Illuga og Sonju Wium, fulltrúa Heimilis og skóla. 

Fleiri fréttir