Undrast viðhorf Ernu Hauksdóttur og vilja bjóða henni í mat
Atvinnu- og ferðamálanefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar mótmælir neikvæðum yfirlýsingum framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um íslensk matvæli og þeim fullyrðingum að verð á þeim hamli ferðaþjónustu. Nefndin lýsir áhyggjum yfir þeim viðhorfum sem felast í ummælum hennar m.a. varðandi innflutning á matvælum á kostnað íslenskrar framleiðslu.
Í Fréttablaðinu og á Vísi.is fyrr í mánuðinum sagði Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, þau vera fullsödd af dýrum mat á Íslandi og telur hún að innganga í ESB myndi laga ástandið en jafnframt sagði hún að samtökin hefðu „ákveðna fyrirvara" gagnvart landbúnaðarþætti aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Atvinnu- og ferðamálanefndin vill vekja athygli á að einn helsti vaxtarbroddur í ferðaþjónustu á landsbyggðinni er matartengd ferðaþjónusta og að í henni felast ótal tækifæri, ekki síst tengd sérkennum einstakra svæða. Þá er bent á að víða á landsbyggðinni er ferðaþjónusta nátengd landbúnaði. Nefndin lýsir einnig furðu yfir áhyggjum framkvæmdastjórans af því að erlendir ferðamenn skilji eftir of mikla fjármuni hér á landi, eins og skilja má ummæli hennar um matarverð og íslensk matvæli. Nefndin samþykkti að bjóða framkvæmdastjóranum norður í Skagafjörð til að kynna sér ferðaþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins, einkum þá blómlegu uppbyggingu sem hér á sér stað í matartengdri ferðaþjónustu og til að bragða á kræsingum úr Skagfirsku matarkistunni.