Ungir listamenn fá að mála í Gúttó
Listafólk í Sólon Myndlistarfélagi á Sauðárkróki ætlar að vera með opna vinnustofu fyrir börn í Gúttó nk. sunnudag þar sem krökkum á öllum aldri verður boðið upp á að mála sín eigin listaverk með akríl á grunnaðar masónítplötur.
Í tilkynningu frá félaginu segir að upplagt sé fyrir þátttakendur að gera t.d. flotta jólagjöf handa ættingjum eða vinum en plöturnar eru í stærðunum A-4 og A-3 og passa því í staðlaðar rammastærðir. Efni og allt annað er frítt í boði Sólon og Menningarsjóðs Kaupfélags Skagfirðinga.
Allir hjartanlega velkomnir að líta við, kaffi, djús og piparkökur í sófa"horninu" okkar.
Sjá nánar á Facebooksíðu Sólons