Unnur Valborg Hilmarsdóttir nýr formaður ferðamálaráðs
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur skipað Unni Valborgu Hilmarsdóttur formann ferðamálaráðs og Evu Björk Harðardóttur varaformann ráðsins. Unnur Valborg er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra, rekur íbúðagistinguna Sólgarð á Hvammstanga og á og rekur fyrirtækið Aðstoðarmaður ehf.
Á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis segir að Unnur Valborg hafi áralanga reynslu af rekstri og stjórnun. Undanfarin ár hefur hún starfað við stjórnendaþjálfun og námskeiðahald, verið framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands á Hvammstanga, framkvæmdastjóri Dale Carnegie á Íslandi og aðstoðarframkvæmdastjóri Hreyfingar. Hún er með B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og Diploma í viðskipta- og rekstrarfræðum frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið prófi í stjórnendamarkþjálfun frá Opna Háskólanum og Coach U.