Uppbygginarsjóður Norðurlands vestra

Opið er fyrir umsóknir. Mynd: Af netinu.
Opið er fyrir umsóknir. Mynd: Af netinu.

Vakin er athygli á því að enn er opið fyrir umsóknir í Uppbygginarsjóðinn. Umsóknarfrestur fyrir árið 2027 er 16. september – 21. október kl. 14:00.Verkefnin geta verið af ýmissi stærðargráðu og er fólk hvatt til að sækja um. Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Rannís: Sæktu um hér.

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningar- og samfélagsverkefni og hins vegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Norðurlandi vestra. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Norðurlands vestra. Með samkeppnissjóði er átt við að samkeppni milli verkefna ræður úthlutun, þ.e. bestu verkefnin að mati úthlutunarnefndar hljóta brautargengi.

Úthlutun 2026

Alls bárust 100 umsóknir fyrir árið 2026 þar sem óskað var eftir rúmlega 228 milljónum króna í styrki, en til úthlutunar voru rúmar 76 milljónir. Umsóknir skiptust þannig: 45 atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni, 43 menningar- og samfélagsverkefni og 12 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki.

Á fundi úthlutunarnefndar 12. desember 2025 var ákveðið að úthluta 76 milljónum króna til 65 verkefna: 22 atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni fengu tæplega 39 milljónir, 35 menningar- og samfélagsverkefni rúmlega 25 milljónir og 8 stofn- og rekstrarstyrkir samtals 12 milljónir.

Nú er um að gera að bretta upp ermar og senda inn umsókn en á liðnum árum hafa mörg góð verkefni komist á legg fyrir tilstilli sjóðsins. /hmj

Fleiri fréttir