Uppbygging hjúkrunar- og dvalarheimila í NV-kjördæmi

Aðbúnaður aldraðra er stöðugt umræðuefni, sér í lagi nú þegar hyllir undir flutning málaflokksins til sveitarfélaga. Mörg rök hníga að því að slíkri nærþjónustu sé best fyrirkomið í höndum sveitarfélaganna. Þrátt fyrir þá fádæmalausu stöðu ríkissjóðs í kjölfar efnahagshrunsins hefur allt kjörtímabilið verið unnið að uppbyggingu öldrunarþjónustu í NV-kjördæmi sem og víðar, í nánu samstarfi við sveitarfélögin og íbúa þeirra.

Stórbætt aðstaða, endurnýjun og uppbygging

Á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi er nú verið að leggja lokahönd á endurnýjun á hjúkrunargangi, þar sem tvíbýlum hefur verið breytt í einbýli og aðstaða öll bætt. Í september s.l. var ný hjúkrunarálma opnuð með glæsilegri aðstöðu. Á kjörtímabilinu var önnur álma stofnunarinnar stækkuð og endurnýjuð og aðstaða stórbætt í matsal, eldhúsi, félagsrými  og annarri aðstöðu. Þessar breytingar héldust í hendur við umtalsverðar breytingar sem gerðar voru á öldrunarþjónustu á HVE þegar öldrunarendurhæfingu með dag- og göngudeildsniði sem mælist vel fyrir hjá notendum.  Á Akranesi býr fólk því ekki lengur á sjúkrahúsi heldur sækir sína þjónustu þangað ef þörf er á.

Í Borgarnesi reis 32 rýma ný og glæsileg hjúkrunarálma við Dvalaheimilið í Borgarnesi og var það vígt í júlí á síðasta ári. Lengi hafði verið ljóst að bæta þyrfti aðbúnað í Borgarnesi og hin nýja álma og endurbætur á eldra húsnæði voru kærkomnar.

Í Stykkishólmi eru nú í undirbúningi umfangsmiklar framkvæmdir sem sameina þjónustu við einstaklinga í þörf fyrir hjúkrunarrými á einum stað, en aðbúnaður á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi er með öllu ófullnægjandi. Stefnt er að því að ný rými verði byggð í húsnæði HVE á staðnum, ásamt endurbótum á öðrum húsakosti stofnunarinnar sem þannig styrkir rekstur stofnunarinnar á staðnum.

Nýtt hjúkrunarheimili, Jaðar, var vígt í Ólafsvík í júní árið 2011. Aðbúnaður þar er nú að fullkomnustu gerð, en þar eru vistarverur fyrir 12 íbúa. Hjúkrunarrými eru hins vegar 10, en viðræður hafa verið um nýtingu þeirra tveggja rýma sem laus eru milli Snæfellsbæjar og velferðarráðuneytisins.

Á Ísafirði hefjast framkvæmdir við nýtt 30 rýma hjúkrunarheimili  í sumar. Ekkert hjúkrunarheimili hefur verið á Ísafirði og því gamalt baráttumál loks í höfn sem er sérstakt gleiðefni.

Á Bolungarvík hefur verið undirritaður samningur um uppbyggingu hjúkrunarheimilis þar, sem leysir af hólmi starfsemi í 60 ára gömlu húsnæði.

Á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi opnar nú næstu daga endurbyggða álmu dvalardeildar stofnunarinnar og er þar um að ræða mikla og góða breytingu á aðbúnaði aldraðra þar.

Áfram veginn

Af ofangreindu má ráða að mikið hefur gerst í uppbygginu húsakosts öldrunarþjónustunnar í kjördæminu. En kjördæmið er stórt og víða er enn margt óunnið. Sveitarfélagið Vesturbyggð hefur lagt fram metnaðarfullar tillögur um uppbyggingu á staðnum og sömuleiðis er mikil þörf fyrir heildarendurskoðun í öldrunarþjónustunni víðar, má þar nefna Sauðárkrók sérstaklega. Framangreint er ekki tæmandi og ljóst að áframhaldandi kröftug vinna að uppbyggingu þjónustu við eldri borgara á NV-landi er nauðsynleg.

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra

Fleiri fréttir