Uppbygging sundlaugar á núverandi stað fyrsti kostur

Á fundi byggðaráðs Skagafjarðar þann 9. júlí sl. var fjallað um undirbúning að enduruppbyggingu Sundlaugar Sauðárkróks ásamt leik- og útivistarsvæði. Fram kom á fundinum að allir flokkar í núverandi sveitarstjórn eru sammála um að fyrsti kostur í sundlaugarmálaum á Sauðárkróki er enduruppbygging Sundlaugar Sauðárkróks á núverandi stað.

Á fundinum lagði Bjarni Jónsson, oddviti V-lista, fram eftirfarandi tillögu:
„Undirbúningur verði hafinn að enduruppbyggingu Sundlaugar Sauðárkróks á núverandi stað í hjarta bæjarins, ásamt leik- og útivistarsvæði. Sveitarfélagið setji framkvæmdinni fjárhagslegan ramma og almenna umgjörð, en skoðað verði að gefa íbúum kost á að taka þátt í hugmyndavinnu við verkefnið.“

Í bókun sem Stefán Vagn Stefánsson, oddviti B-lista, og Sigríður Svavarsdóttir, oddviti D-lista, lögðu fram í kjölfarið kom fram að ýmsar hugmyndir hefðu verið uppi varðandi framtíðarsýn fyrir sundlaugina og lítið sem ekkert hefði verið gert við laugina á meðan en núverandi ástand væri ekki boðlegt mikið lengur.

Jafnframt kom fram að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 væri gert ráð fyrir að farið yrði á hönnun á sundlauginni og sú vinna sé komin í gang. Verið sé að meta núverandi stöðu og fá hugmyndir til að vinna með svo hægt verði að taka ákvarðanir um hvernig best sé að standa að uppbyggingu mannvirkisins, en sveitarfélagið hefur fengið verkfræðistofuna Stoð ehf. með sér í þá vinnu. „Taka þarf ákvörðun um hvað eigi að byggja, kostnaðarmeta og setja í áætlanir sveitarfélagsins. Brýnt er að hraða þeirri vinnu sem kostur er,“ segir í bókun þeirra Stefáns Vagns og Sigríðar.

Eftir nokkrar umræður á fundinum var samþykkt bókun þess efnis að allir flokkar í núverandi sveitarstjórn væru sammála því að fyrsti kostur væri uppbygging sundlaugar á núverandi stað og var tillögunni vísað til þeirrar vinnu sem þegar er hafin.

Fleiri fréttir