Upplýsingafundur knattspyrnudeildar Tindastóls

Knattspyrnudeild Tindastóls stendur fyrir upplýsingafundi fyrir foreldra, iðkendur og velunnara deildarinnar þriðjudaginn 17 .september, kl. 19:30 í matsal Árskóla. Til umræðu verða þjálfaramál, kennslufræði og þjálfunaraðferðir  næsta tímabil.

Þetta er tækifæri fyrir foreldra/iðkendur og aðra velunnara knattspyrnu í Skagafirði til þess að kynnast þjálfurum og fá upplýsingar um þjálfunartækni fyrir komandi knattspyrnuár Tindastóls. Einnig verður opnað fyrir spurningar þar sem yfirþjálfari knattspyrnudeildar, Jay McDonough, situr fyrir svörum.

Á efniskrá:
1.         Kynning á þjálfurum - 10 mín.
2.         Þjálfunaraðferðir kynntar 2019-2020 - 30 mín.

  • A.        Kennslufræði og markmið..
    B.        Hvernig æfum við..
    C.        Hvernig spilum við…
    D.        Hvernig styðjum við…

3.  Foreldrastuðningur/hvatning - 5 mín.
4.  Spurningar og svör - 20 mín. (eða eins lengi og fólk vill spyrja Jamie)

Eru allir áhugasamir um knattspyrnu hvattir til að mæta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir