Uppselt á Svefnlausa brúðgumann í kvöld

Miðasala á Svefnlausa brúðgumann gengur ljómandi vel.  Uppselt er í kvöld, fimmtudag, en taka skal fram að þeir sem fengu gjafamiða frá VÍS á sýninguna í kvöld og eru ekki komnir með miða, geta nýtt boðið á aðrar sýningar að eigin vali.

Örfáir miðar eru eftir á 7. sýningu miðvikudaginn 11. maí.  Nokkuð er af lausum miðum á aðrar sýningar og er fólk minnt á að nýta sér boðsmiða stéttarfélaga Skagafjarðar og sjúkrahússins.

Miðasala er í síma 849-9434 , nánari upplýsingar á www.skagafjordur.net/ls

Fleiri fréttir