Uppselt á þrjár sýningar - Uppfært

Leiksýning Leikfélags Sauðárkróks, Tifar tímans hjól, verður frumsýnt á opnunardegi Sæluviku sunnudaginn 28. apríl kl. 20:30 en nú þegar er uppselt á frumsýningu, 4. og 7. sýningu. Verkið er glænýtt og samið í kringum tónlist Geirmundar Valtýssonar og auk þekktra laga þá er eitt nýtt lag í stykkinu. Áður var rangt farið með þær sýningar sem uppselt er á.

Höfundar leikritsins eru Árni Gunnarsson og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson sem einnig leikstýrir verkinu. Miðasala er í síma 849 9434 virka daga frá kl. 16:00 – 18:00 og einnig klukkustund fyrir sýningu í síma og í Bifröst.

Eftirfarandi er sýningarplanið:

Frumsýning sunnudaginn 28. apríl kl 20:30 (Uppselt)
2. sýning þriðjudaginn 30. apríl kl 20:30
3 sýning fimmtudaginn 2. maí kl 20:30
4. sýning föstudaginn 3. maí kl 23:00 (Miðnætursýning) (Uppselt)
5. sýning laugardaginn 4. maí kl 15:00
6. sýning sunnudaginn 5. maí  kl 20:30
7. sýning þriðjudaginn 7. maí kl 20:30 (Uppselt)
8. sýning fimmtudaginn 9. maí  kl 17:00
9. sýning föstudaginn 10. maí  kl 23:00 (Miðnætursýning)
10. sýning laugardaginn 11. maí kl 15:00

 

Fleiri fréttir