Uppskeruhátíð á sunnudag og leikur á morgun
Eitthvert dagarugl er í auglýsingu frá Mælifelli í Sjónhorninu sem kemur út í dag en þar stendur að leikur KR og Tindastóls verði sýndur á á sunnudaginn en það er ekki rétt. Hann verður sýndur á tjaldinu kl. 19;15 á morgun fimmtudag. Þá verður uppskeruhátíð fótboltakrakkanna í 5. flokki og yngri á sunnudag.
Í Sjónhorninu mun standa að uppskeruhátíðin sé á morgun fimmtudag en henni var seinkað vegna þess að 7. bekkur dvelur nú í skólabúðunum á Reykjum og verður því haldin á sunnudaginn kl. 16:00.